top of page
  • alt.text.label.Instagram
  • Facebook

Ungbörn

Góðar venjur frá upphafi stuðla að heilbrigðum barnatönnum.

Tannburstun

Um leið og fyrsta tönn kemur í munninn byrjum við að tannbursta. Við notum mjúka litla ungbarnabursta með agnarögn af barnatannkremi.

Gott er að miða við magn tannkrems eins og nöglin á litla fingri barnsins.

Næturgjafir

Venja ætti börn frá 1 árs aldri að drekka smám saman vatn í stað mjólkur á nóttunni.

​Barn ætti aldrei að fá að sofa með mjólk í pela í rúminu sínu eftir að tennur eru komnar í munninn.

Sá vökvi, sem er í pelanum, mun liggja í munni barnsins og hafa áhrif á tennurnar allan þann tíma sem barnið sefur.

Ef barni er gefin mjólk fyrir svefninn mælum við auðvitað með að bursta tennur á eftir.

Hvað er í pelanum

Mjólk og vatn er best.

Ávaxtasafi er bæði súr og sætur og því betri sem drykkur með mat en til að svala þorsta.

Hver sopi af safa baðar tennur í sykri og eykur hættu á tannskemmdum á glænýjum barnatönnum.

Mjólkursykur

Mjólkursykur/laktósi er sykur sem finnst í mjólk og mjólkurvörum.

Brjóstamjólk er yfirleitt sætari (meiri laktósi) en kúamjólk.

Laktósi gefur barninu orku og hjálpar við þroska heilans og upptöku næringarefna.

Mjólkin er sæt og ef hún fær að liggja í munni barnsins mun mjólkursykurinn skemma tennurnar.

​Gott er að hafa í huga að flestar bragðbættar mjólkurvörur og vegan "mjólkur"vörur innihalda oft líka viðbættan sykur.

Snuð og kjálkavöxtur

Gott er að börn séu hætt að nota snuð um 3 ára aldur.

Snuð sem er alltaf í munninum kemur í veg fyrir að tungan nái að sinna hlutverki sínu í að forma kjálka og andlit. Tungan liggur þá of lágt í stað þess að liggja upp í efri gómnum og stuðla að eðlilegum breiddarvexti 

efri kjálka. Ef tungan heldur ekki við er hætta á að gómurinn verði of þröngur, bæði fyrir tennur og nefhol.

Þröngt nefhol eykur líkur á munnöndun og hrotum.

Munnöndun eykur líkur á tannskemmdum.

 

Einnig sjáum við snuddubros eða opið bil á milli efri og neðri framtanna ef börn nota snuðið of lengi. Tennurnar ná þó oftast að rétta sig af ef barnið hættir að nota snuðið um 3 ára aldur.

Mikil smithætta ef þú sleikir snuðið

Með því að sleikja snuðið færum við bakteríuflóruna okkar yfir til þeirra og getum þannig smitað þau.

Ónæmiskerfi þeirra er mun viðkvæmara.

Betra er að skola með rennandi vatni. Það getur verið lífshættulegt fyrir ungbarnið þitt ef þú ert með streptókokka sýkingu og sleikir snuðið þeirra til að “hreinsa” það.

Um leið og barnið er komið með tennur færum við tannskemmda bakteríurnar okkar yfir til þeirra.

Mikilvægi tyggingar

​Að tyggja seigan og harðan mat örvar og styrkir vöxt kjálka og andlitsvöðva. Tunga og varir hjálpast að við að naga og halda matnum í munninum áður en kyngt er. 

Sterk tunga býr til breiðari efri kjálka með því að hvíla upp í efri gómnum og örva breiddarvöxt. Þá verður nefholið líka breiðara sem gerir neföndun léttari og minna um hrotur.

Í breiðari kjálkum er meira pláss fyrir tennur og minni líkur á tannréttingarþörf síðar.

Því mýkri sem fæðan er því minni þjálfun fá andlitsvöðvarnir og kjálkar þrengjast.

 

Höldum skvísunum í hófi og látum þau tyggja. 

bottom of page