top of page
Stofan

Persónuverndaryfirlýsing 

Tannir tannlæknastofu ehf

og notkunarskilmálar vefsíðu

ALMENNT

Okkur er umhugað um friðhelgi einkalífs og kappkostum að vernda persónuupplýsingar þínar.  Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig við umgöngumst þær persónuupplýsingar sem við geymum um þig og hvaða réttindi þú átt varðandi upplýsingarnar.  Einnig koma hér fram skilmálar fyrir notkun vefs félagsins.

ÁBYRGÐARAÐILI

Tannir tannlæknastofa ehf, kt. 6812013510, Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi er ábyrgðaraðili fyrir þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við meðferð sjúklinga stofunnar.

NOTKUNARSKILMÁLAR VEFS

Samþykki þitt á eftirfarandi notkunarskilmálum vefsins er skilyrði fyrir notkun þinni á vefnum.  Samþykkir þú ekki skilmálana biðjum við þig um að yfirgefa vefinn tafarlaust. 

Á vefnum virkjast vefkökur (cookies) í því skyni að gera vefinn aðgengilegri fyrir notendur og til að auka þjónustustig.  Vefkökur eru litlar textaskrár sem vefur vistar á tölvu eða snjalltæki þínu.  Vefkökur gera kleift að fá nafnlausar upplýsingar um hvernig notendur nota vefinn.  Ekki eru vistaðar persónulegar upplýsingar um notendur út frá þessum skrám.  Ef þú vilt ekki að vefkökur myndist þarf að stilla vafra þannig að hann taki ekki við vefkökum.  Unnt er að nálgast upplýsingar um stillingar og eyðingu á vefkökum á vefsvæðinu www.aboutcookies.org.

Allt sem birt er á þessum vef er varið höfundarrétti svo sem textar, myndbönd og myndir.  Niðurhal til einkanota er heimilt á texta.  Öll önnur notkun efnis af vefnum, með eða án beitingu forrita, er bönnuð nema með skriflegu samþykki Tannir þar með talin söfnun upplýsinga, vinna með þær, afritun, endurbirting eða dreifing.  Tilvísanir á síður vefsins eru heimilar frá öðrum síðum.

Efni vefsins er birt með fyrirvara um mögulegar villur eða rangfærslur.  Birtingin er án þess að gengist sé í  ábyrgð eða undir skuldbindingar svo sem þær kunna að skapast vegna efnisins.

Notkunarskilmálar geta breyst án fyrirvara.  Með notkun á vef Tannir samþykkir þú þessa notkunarskilmála.

 

HVAÐA UPPLÝSINGUM SÖFNUM VIÐ

Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um einstakling sem gera mögulegt að persónugreina hann, beint eða óbeint.  Þær persónuupplýsingar um þig sem við vistum eru:​

  • Tengiliðaupplýsingar, svo sem nafn, kennitala, heimilisfang, tölvupóstfang og símanúmer.

  • Sjúkraskrárupplýsingar, svo sem sjúkrasaga, röntgenmyndir og stafrænar myndir, samskipti við aðra heilbrigðisstarfsmenn vegna meðferðar o.fl..

  • Greiðsluupplýsingar, t.d. greiðslukortanúmer og upplýsingar um greiðslur.

  • Tæknileg gögn, svo sem IP-tölur og önnur gögn tengd notkun þinni á vefsíðu okkar.

  • Gögn úr öryggismyndavélum.

Hluti persónuupplýsinga sem við söfnum, einkum sjúkraskrárupplýsingar, teljast til viðkvæmra persónuupplýsinga í skilningi persónuverndarlaga.  Öll meðferð slíkra upplýsinga er í samræmi við fyrirmæli laga um sjúkraskrár, persónuvernd og siðareglur Tannlæknafélags Íslands.

 

HVERNIG SÖFNUM VIÐ UPPLÝSINGUM

Við öflum tengiliðaupplýsinga frá þér í gegnum eyðublöð, síma, tölvupóst, tengslaform á vefsíðu eða með öðrum hætti.  Við öflum heilsufarsupplýsinga frá þér og eftir atvikum öðrum tannlæknum eða öðrum heilbrigðisstarfsmönnum, auk þess sem við skráum upplýsingar um þá meðferð sem við veitum þér.  Jafnframt höldum við utan um greiðsluupplýsingar og útgefna reikninga sem eru nauðsynlegar vegna samningssambands okkar og til að uppfylla skilyrði skatta- og bókhaldslaga.  Aðrir aðilar hafa einnig aðgang að þessum upplýsingum svo sem við færslu bókhalds, innheimtu reikninga eða skoðun bókhalds.

Við notkun þína á vefsvæði okkar söfnum við vissum upplýsingum með notkun vefkaka (e. cookies) og með sambærilegri tækni.  Persónulegar upplýsingar vistast ekki í vefkökum.

 

TILGANGUR VINNSLU OKKAR Á PERSÓNUUPPLÝSINGUM

Við vinnum eingöngu persónuupplýsingar þínar að því marki sem lög heimila.  Helstu tilvik eru eftirfarandi:  

  • Til að halda sjúkraskrá í samræmi við fyrirmæli laga um sjúkraskrár nr. 55/2009 og til að uppfylla önnur fyrirmæli löggjafar um heilbrigðisstarfsemi.

  • Til að efna samning okkar við þig um veitingu tannlæknaþjónustu.

  • Til að gæta lögmætra hagsmuna Tannir tannlæknastofu ehf.

  • Til að gæta hagsmuna þinna í tengslum við meðferð.  

Tannir tannlæknastofa ehf notar hvorki persónuupplýsingar þínar í markaðsskyni né veitum við þriðja aðila aðgang að þeim í slíkum tilgangi. 

Við notum upplýsingar þínar eingöngu í þeim tilgangi sem var ástæða söfnunar þeirra, nema þörf sé á að nýta þær í öðrum tilgangi sem er samrýmanlegur upprunalegum tilgangi.  Ef við þurfum að vinna upplýsingar í ótengdum tilgangi munum við upplýsa þig um þá vinnslu að því tilskildu að lög heimili. 

 

MIÐLUN TIL ÞRIÐJU AÐILA

Í því skyni að uppfylla þann tilgang sem lýst er hér að ofan kann að vera nauðsynlegt að miðla persónugreinanlegum upplýsingum um þig til þriðju aðila.  Slíkir aðilar geta verið ábyrgðaraðilar eða vinnsluaðilar eftir atvikum.  Helstu dæmi um slíka aðila eru eftirfarandi: 

  • Aðrir heilbrigðisstarfsmenn, t.d. aðrir tannlæknar, læknar, sjúkraþjálfarar, tannsmiðir og aðrir sérfræðingar eða starfsmenn slíkra aðila svo sem sendlar.

  • Þjónustuaðilar okkar, t.d. hýsingaraðilar UT-búnaðar og fjarskiptafyrirtæki.

  • Ráðgjafar okkar, t.d. lögmenn, endurskoðendur og vátryggjendur.

  • Innheimtufyrirtæki og bókhaldsaðilar.

  • Sjúkratryggingar Íslands, Embætti Landlæknis, vátryggingafélög, skattayfirvöld, önnur yfirvöld s.s. lögregla og barnavernd.

Við miðlum gögnum einungis að því marki sem nauðsynlegt er og heimilum þriðju aðilum ekki önnur not þeirra.  Sjúkraskrárupplýsingum er einungis miðlað að því marki sem samræmist þagnarskyldu okkar sem heilbrigðisstarfsmanna og fyrirmælum laga um sjúkraskrár.

 

FLUTNINGUR TIL ANNARRA LANDA

Tannir tannlæknastofa ehf notast við þjónustuveitendur sem í einhverjum tilvikum kunna að vinna persónuupplýsingar þínar utan EES-svæðisins. Í slíkum tilvikum ábyrgjumst við að flutningur gagna til landa utan EES-svæðisins eigi sér aðeins stað í samræmi við ákvæði þar að lútandi í gildandi persónuverndarlöggjöf. 

Við mun mögulega þurfa að senda læknisfræðileg gögn til aðila utan EES-svæðisins í því skyni að veita tiltekna tegund tannlæknaþjónustu, t.d. vegna tannsmíða eða gerð ClearCorrect eða Invisalign góma.  Slík miðlun gagna á sér eingöngu stað á grundvelli samnings við þig um viðkomandi þjónustu. 

 

ÖRYGGI PERSÓNUUPPLÝSINGA

Tannir tannlæknastofa ehf viðhefur viðeigandi öryggisráðstafanir í því skyni að hindra að persónuupplýsingar þínar glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi.  Aðgangur að upplýsingunum er auk þess takmarkaður við þá aðila sem nauðsyn ber til og sem eru bundnir trúnaðarskuldbindingu. 

Ef upp kemur öryggisbrestur sem hefur áhrif á persónuupplýsingar munum við tilkynna slíkt til Persónuverndar og eftir atvikum til þín eftir því sem lög mæla fyrir um. 

 

HVE LENGI ERU PERSÓNUUPPLÝSINGAR GEYMDAR?

Um vörslu sjúkraskrárupplýsinga fer samkvæmt lögum um sjúkraskrár nr. 55/2009. Óheimilt er að eyða upplýsingum úr sjúkraskrá sjúklings nema með samþykki landlæknis. 

Aðrar persónuupplýsingar geymum við aðeins svo lengi sem nauðsyn ber til í þeim tilgangi sem þeirra var aflað.  Geymslutími slíkra persónuupplýsinga fer eftir eðli upplýsinganna og þeim lagareglum sem gilda um viðkomandi vinnslu persónuupplýsinga, t.d. skatta- eða bókhaldslöggjafar.  Í einstaka tilvikum kann einnig að vera nauðsynlegt að geyma gögn vegna lögmætra hagsmuna félagsins t.d. vegna deilumála. 

 

RÉTTUR ÞINN

Í vissum tilvikum átt þú réttindi samkvæmt persónuverndarlöggjöf í tengslum við vinnslu okkar á persónuupplýsingum.  Ef þú vilt neyta þessara réttinda biðjum við þig að hafa samband við okkur og við munum leitast við að svara beiðni þinni eins fljótt og auðið er (í flestum tilvikum innan eins mánaðar frá móttöku) nema um sé að ræða margar eða umfangsmiklar beiðnir.  Við kunnum að óska eftir viðbótarupplýsingum frá þér í tengslum við beiðni þína, t.d. vegna auðkenningar.  

Tannir tannlæknastofa ehf tekur almennt ekki gjald fyrir afhendingu gagna eða afgreiðslu annarra beiðna.  Við áskiljum okkur þó rétt á að innheimta gjald eða synja um afhendingu þegar um er að ræða beiðnir sem eru bersýnilega tilhæfulausar, óhóflegar eða margendurteknar. 

RÉTTUR TIL AÐGANGS:  Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum um þig og að fá afhent afrit upplýsinganna.  Með þeim hætti getur þú fullvissað þig um að upplýsingarnar séu réttar og að vinnsla okkar á þeim sé í samræmi við lög.  Ef þú skiptir um tannlækni munum við láta þeim tannlækni í té afrit af sjúkraskrárupplýsingum þínum í samræmi við 10. gr. laga um sjúkraskrár.

RÉTTUR TIL LEIÐRÉTTINGAR:  Ef einhverjar upplýsingar um þig eru rangar eða ónákvæmar átt þú almennt rétt á að láta okkur leiðrétta þær.  Um rétt þinn til leiðréttinga á sjúkraskrárupplýsingum fer samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga um sjúkraskrár.

RÉTTUR TIL EYÐINGAR:  Í vissum tilvikum getur þú átt rétt á að við eyðum persónuupplýsingum sem við geymum um þig.  Þetta á einkum við í þeim tilvikum þar sem upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar, ef þú hefur andmælt vinnslu upplýsinganna (sbr. hér að neðan), ef vinnslan reynist ólögmæt, eða ef vinnslan byggði á samþykki sem þú hefur síðar afturkallað. Tannir áskilur sér þó rétt til að meta í hvert eitt sinn hvort skylt sé að eyða gögnum.  Óheimilt er að eyða upplýsingum úr sjúkraskrá þinni nema með samþykki landlæknis.

RÉTTUR TIL AÐ ANDMÆLA VINNSLU:  Ef vinnsla okkar byggir á lögmætum hagsmunum Tannir tannlæknastofu ehf eða annarra, og þú telur að vegna aðstæðna þinna brjóti vinnslan gegn grundvallarréttindum þínum, getur þú andmælt vinnslunni.  Ef þú andmælir, hættum við vinnslunni nema við getum bent á ríkari lögmæta hagsmuni af að halda henni áfram. 

RÉTTUR TIL TAKMÖRKUNAR Á VINNSLU:  Í eftirtöldum tilvikum átt þú rétt á að við stöðvum vinnslu persónuupplýsinga:

  • Ef þú vefengir að persónuupplýsingarnar séu réttar (þangað til við getum staðfest að þær séu réttar).

  • Vinnslan er ólögmæt, en þú vilt ekki að persónuupplýsingunum sé eytt.

  • Við þurfum ekki lengur á persónuupplýsingunum að halda fyrir vinnsluna en þú þarfnast þeirra til þess að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur.

  • Þú hefur andmælt vinnslunni, sbr. að ofan.  Í því tilviki stöðvum við vinnslu meðan við höfum ekki bent á ríkari lögmæta hagsmuni okkar af að halda henni áfram. 

 

RÉTTUR TIL AÐ AFTURKALLA SAMÞYKKI:  Í þeim tilvikum þar sem við byggjum vinnslu á samþykki þínu er þér ávallt heimilt að afturkalla slíkt samþykki.  Afturköllun þýðir þó ekki að vinnsla sem fór fram áður en samþykki var afturkallað sé ólögmæt. 

 

TENGILIÐUR

Ef þú hefur spurningar, athugasemdir, eða kvartanir fram að færa varðandi þessa persónuverndaryfirlýsingu eða meðferð félagsins á persónuupplýsingum eða notkunarskilmálum vefsins getur þú haft samband við persónuverndarfulltrúa félagsins, Margréti Hjaltadóttur tannlækni netfang margret@tannir.is.  Ef þú telur þig ekki fá úrlausn þinna mála hjá persónuverndarfulltrúanum er þér ávallt heimilt að beina kvörtun til Persónuverndar, vefsíða: www.personuvernd.is.

 

BREYTINGAR

Persónuverndarstefna okkar er í stöðugri skoðun og því kann þessari persónuverndaryfirlýsingu að verða breytt.  Við munum birta allar slíkar breytingar á vefsíðunni okkar www.tannir.is.

Með sama hætti er okkur mikilvægt að upplýsingar um þig séu ávallt sem réttastar.  Því biðjum við þig góðfúslega að láta okkur vita ef tengiliðaupplýsingar þínar t.d. símanúmer þitt, netfang eða aðrar upplýsingar breytast. 

Persónuverndaryfirlýsing þessi var samþykkt þann 15.9.2023 .

bottom of page